Heiti stofnunnar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Vöruheiti
Skartgripir úr eðalmálmum
Hvað ber að varast
Neytendur sem ætla að kaupa skartgripi unna úr eðalmálmum ættu einungis að kaupa slíkar vörur ef þær eru með ábyrgðarstimplum, en þeir eru hreinleikastimpill og nafnastimpill. Án þessara stimpla er erfitt fyrir neytendur að átta sig á hversu mikið gull eða annar eðalmálmur er í vörunni og hver ábyrgðaraðili vörunnar er.
Nafnastimpill auðkennir framleiðanda, seljanda eða innflytjanda vöru þannig að hægt sé að rekja uppruna vörunnar og þar með hver ber ábyrgð á vörunni. Ábyrgðaraðili þarf að vera samþykktur og skráður hjá HMS. Oftast er nafnastimpill bókstafir sem auðkenna ábyrgðaraðilann en einnig er hægt að nota tákn. Listinn yfir skráða íslenska nafnastimpla og eigendur þeirra er hægt að nálgast hér.
Hreinleikastimpill segir til um þann hreinleika sem seljendur lofa við sölu á vörunni. Það er þriggja tölustafa stimpill sem sýnir hversu mikið magn af hreinu gulli, silfri, platínu eða palladíum er í viðkomandi vöru. Vara sem hefur hreinleikastimpilinn 585 gefur til kynna að varan inniheldur 58,5% hreint gull. Ef varan er merkt 375 inniheldur varan 37,5% hreint gull. Algengt er að silfur sé merkt 925 sem þýðir að varan inniheldur 92,5% silfur.
Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur
Mikilvægt er að neytendur passi sjálfir upp á að þær merkingar sem eiga að vera á vörunni séu fyrir hendi. Vöruöryggisteymi HMS hefur gefið út upplýsingarbækling um hvaða lagalegar kröfur gilda um vörur unnar úr eðalmálmum, þ.e. úr gulli, silfri, palladíum og platínu. Bæklinginn nýtist framleiðendum, söluaðilum og neytendum.
Deildu